Þessi vinnubók fylgir samnefndri lestrarbók og er ætluð nemendum á mið-og unglingastigi grunnskóla.
Verkefnin henta vel þeim sem eru með annað móðurmál en íslensku eða þurfa að styrkja málvitund sína af öðrum ástæðum. Lögð er áhersla á að nemendur fái þjálfun í að tengja saman lestur sögubókar og verkefni í vinnubók. Í vinnubókinni er athygli nemenda beint að lesskilningi, orðaforða og málfræði, þ.e. að nemendur átti sig á hvaða beygingarmynd tiltekinna orða á við i setningu. Æskilegt er að nemendur hafi kynnst heiti orðflokka en það er ekki nauðsynlegt þar sem dæmi um lausnir er ávallt sýnt.