Málfræðibókin mín - 1. hefti er samin fyrir börn með annað móðurmál en íslensku sem hafa náð allgóðri færni í íslensku máli.
Hún er einkum ætluð nemendum á miðstigi og unglingastigi grunnskólans og er hið fyrsta í röð þriggja hefta. Námsbókinni er m.a. ætlað að uppfylla þau markmið í kaflanum ,,íslenska sem annað tungumál" í Aðalnámskrá grunnskóla - íslenska, þar sem segir að nemendur eigi að vera færir um að stunda nám i íslenskum grunnskólum og öðlast ,,munnlega og skriflega færni í íslensku sem gerir þeim kleift að stunda nám við eðlilega framvindu til jafns við jafnaldra sína."