Málið í mark – Óbeygjanleg orð er eitt af þremur heftum í flokki rafrænna vinnuhefta í íslenskri málfræði fyrir unglingastig. Í þessu hefti er fjallað um þá orðflokka sem eru óbeygjanlegir, þ.e. þeir hvorki fallbeygjast né tíðbeygjast. Þessir flokkar eru:
- Nafnháttamerki
 - Upphrópanir
 - Forsetningar
 - Samtengingar
 - Atviksorð
 
Í heftinu eru fjölbreytt verkefni til þjálfunar í tengslum við óbeygjanleg orð og ýmis atriði málfræði og málnotkunar, s.s margræðni orða, viðtæk og sértæk orð, málshætti, beina og óbeina ræðu.
