Smábókunum er skipt í fimm þyngdarflokka og er Númi í þeim fimmta. Orðaval í bókinni tekur ekki alfarið mið af því að hún er ætluð byrjendum í lestri. Því er mikilvægt að kennarar og foreldrar styðji vel við lesandann eða lesi jafnvel fyrir hann á köflum.
Núma leiddist í sumarbústaðnum með afa. En svo færist heldur betur fjör í leikinn og Númi þarf að láta hendur standa fram úr ermum.
Bókin er í senn bók til lestrarþjálfunar og til að minna á mikilvæg atriði í tengslum við slysavarnir á heimilum s.s. viðbrögð við brunasárum, öryggi í tengslum við heita potta, sjúkrakassa og eldvarnir. Bókin er gefin út í samstarfi við Slysavarnarfélagið Landsbjörg sem kostaði gerð mynda og texta.
Númi stendur í ströngu er skreytt litríkum og fjörlegum myndum sem styðja vel við textann.