Orðspor 1 er fyrsta bókin í heildstæðu námsefni í íslensku fyrir miðstig grunnskóla.
Í bókinni kynnast nemendur uppruna íslenskunnar, fá að grúska og grafa upp fróðleik um hitt og þetta, eflast í framsögn, tjáningu, ritun, hlustun og lestri.
Bókinni er skipt niður í sjö meginkafla en nokkrir uppbrotskaflar koma inn á milli. Þessir sjö meginkaflar fjalla um tungumálið, námstækni, lestur, leiðbeiningar, fræðitexta, ljóð og fjölmiðla. Í öllum köflunum eru verkefni sem reyna á ritun, framsögn/tjáningu og lesskilning.