Vefur í enskri og íslenskri útgáfu. Enska útgáfan er ætluð til enskukennslu á yngsta stigi. Íslensk útgáfa vefjarins, Leikur að íslenskum orðum er ætlaður til málörvunar í íslensku, jafnt með nemendum með hægan málþroska og ekki síður nemendum sem eru með annað móðurmál en íslensku. Vefurinn nýtist einnig byrjendum í íslensku á miðstigi. Markmið vefjarins er fyrst og fremst að kenna nemendum algeng orð, ritun þeirra, lestur og framburð. Þemun sem tekin eru fyrir á vefnum eru áþekk þeim sem finna má í byrjendaefni eins og Adventure Island of English Words og Right on!. Því er auðvelt að nota vefinn samhliða því námsefni.