Smábækur Menntamálastofnunar eru einkum ætlaðar börnum á yngsta stigi grunnskólans sem eru að læra að lesa. Reynt er að höfða til ólíkra áhugasviða barnanna með innihaldsríkum texta og ríkulegum myndskreytingum þrátt fyrir einfalda framsetningu.
Flokknum er skipt í fimm þyngdarstig og er Rumur í Rauðhamri í 4. flokki. Hún segir frá Degi sem fer með foreldrum sínum í ferðalag og verður fyrir óvæntri reynslu.