1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Sagan um Bólu 1

Sagan um Bólu 1

  • Höfundur
  • Hanna Krístín Þorgrímsdóttir
  • Myndefni
  • Ingi Jensson
  • Vörunúmer
  • 7080
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2012
  • Lengd
  • 8 bls.

Sagan um Bólu 1 er fyrsta bókin af 10 heftum sem eru æfingaefni í lestri fyrir byrjendur. Efnið skiptist í stutta sögu um köttinn Bólu sem prenta þarf út af vef Menntamálastofnunar og 10 lítil lestrarhefti sem byggjast á sögunni. Gert er ráð fyrir að í upphafi sé sagan lesin í heild fyrir nemendur en hver hluti svo rifjaður upp með þeim áður en þeir lesa heftin.

  • Upprifjun úr sögunni er aftast í hverju hefti. Með því að rifja söguna upp með barninu fær stuttur texti lestrarheftisins aukna merkingu í huga þess. 
  • Lestrartextinn byggist á hljóðaaðferð og er lögð áhersla á tengsl bókstafs og hljóðs.
  •  Einnig eru kenndar algengar orðmyndir. Í þessu hefti er einkum fengist við bókstafina: í, ó, s, á, l, a, i, r, b, m, u, ú, f, e og orðmyndirnar ekki, og, ég og sagði.