Sagan um Bólu er æfingaefni í lestri fyrir byrjendur. Efnið skiptist í stutta sögu um köttinn Bólu sem prenta þarf út af vef Menntamálastofnunar og tíu lítil lestrarhefti sem byggjast á sögunni. Þetta er áttunda hefti af tíu.
Gert er ráð fyrir að í upphafi sé sagan lesin í heild fyrir nemendur en hver hluti svo rifjaður upp með þeim áður en þeir lesa heftin. Upprifjun úr sögunni er aftast í hverju hefti.- Með því að rifja söguna upp með barninu fær stuttur texti lestrarheftisins aukna merkingu í huga þess.
- Lestrartextinn byggist á hljóðaaðferð og er lögð áhersla á tengsl bókstafs og hljóðs.
- Einnig eru kenndar algengar orðmyndir. Í þessu hefti bætast bókstafirnir g, é og þ við það sem fengist var við í fyrri heftum.