Kennsluleiðbeiningar og verkefni til útprentunar með Sögueyjan 2 sem er kennslubók í Íslandssögu áranna 1520–1900.
Kennsluleiðbeiningarnar skiptast í tvo meginþætti – annars vegar almennar upplýsingar undir liðnum „Til kennara“ og hins vegar leiðarvísi fyrir einstaka kafla námsbókarinnar. Þær hafa það hlutverk að varpa ljósi á meginþætti námsbókarinnar og benda á leiðir til að nýta hana til kennslu og náms.
Í þeim textanum - Til kennara - er að finna upplýsingar sem eiga við bókina í heild sinni. Þar er greint frá helstu markmiðum bókar og kennsluleiðbeininga auk þess sem fjallað er um kennsluaðferðir og námsmat. Þar næst er að finna upplýsingar um vettvangsferðir og krækjur sem tengjast efni bókarinnar. Að lokum er boðið upp á eyðublöð fyrir foreldra- og kennaramat.