Villta vestrið er þemahefti í sögu fyrir mið- og unglingastig og er í bókaflokknum Sögugáttin.
Bókin fjallar stuttlega um fyrstu árin í sögu Bandaríkja Norður-Ameríku. Hver fann landið og hvernig var landnáminu háttað. Af hverju var landsvæðið stundum kallað Villta vestrið? Hver voru örlög frumbyggja landsins og hvernig þróuðust stjórnarhættir í landinu. Sagt er frá þróun fyrstu 13 ríkjanna og fjallað er um frekara landnám til vesturs og hvernig fólki af ólíkum uppruna tókst að koma sér fyrir í nýju landi, þrælahald og fleira.
Í bókinni eru fjölbreytt verkefni sem hugsuð eru sem æfing í frekari heimildavinnu.