Bókin er í flokki kennslubóka í stærðfræði fyrir yngsta stig grunnskóla. Í Sprota er lögð áhersla á margskonar kennsluaðferðir og misþung verkefni, markmið eru skýr og hvert viðfangsefni tekið frá hinum ýmsu hliðum. Þá eru textar stuttir og auðlesnir.
Sproti 3 samanstendur af: Tveimur nemendabókum a og b, tveimur æfingaheftum a og b, verkefnum til ljósritunar og tveimur kennarabókum a og b.
Efnisþættir í Sprota 3a – Æfingahefti eru:
- upplýsingar og tölfræði
- þriggja stafa tölur
- mælingar
- tími
- rúmfræði
- margföldun 1
- deiling og samhverfa.