Hægt er að nálgast rafræna útgáfu kennarabóka á læstu svæði kennara.
Stika 2b er hluti af námsefnisflokki í stærðfræði fyrir miðstig grunnskóla. Kennarabókin Stika 2b fylgir samnefndri nemendabók frá blaðsíðu til blaðsíðu. Í upphafi hvers kafla eru markmið nákvæmlega tilgreind og í kennarabókinni er einnig tillaga að tímaáætlunum fyrir eitt námsár. Aftast í kennarabókinni eru nokkur blöð til ljósritunar sem vísað er til í tengslum við tiltekna námsþætti nemendabókarinnar.