Stika býður upp á sveigjanleika í stærðfræðikennslu með því að gefa kennurum möguleika á að nota mismunandi kennsluaðferðir. Stika felur í sér örvandi, innihaldsríkan og slemmtilegan leiðarvísir til stærðfræðinnar. Það er lögð áhersla á hagnýt og fjölbreytt verkefni þar sem tækifæri gefast til að rannasaka og skapa.
Efnið tengir saman fræðilega umfjöllun og hagnýt verkefni. það er lagað að nemendum með mismunandi námsgetu. Textar eru stuttir og auðlesnir og fjalað er um hvern námsþátt í nokkurn tíma.
Á eftir hverjum kafla í bókinni eru æfingasíður og próf.