Markmiðið með þessu forriti er að þjálfa nemendur í margföldun. Forritið er leikur þar sem gert er ráð fyrir að tveir leiki og keppi innbyrðis. Hægt er að velja um fjögur mismunandi þrep í leiknum. Hér er á ferðinni endurgerð fyrir vef á samnefndu forriti sem Menntamálastofnun gaf út árið 1993. Forritið var endurgert árið 2013 og gengur á öll stýrikerfi.