Yes we can 2 – verkefnabók, er fyrsta bókin í flokki sem inniheldur heildstætt námsefni í ensku fyrir yngsta – og miðstig en alls eru bækurnar sex talsins. Í námsefninu er lögð áhersla á að hvetja nemendur og kennara til að tala ensku allt frá upphafi enskunáms. Nemendur læra orð, setningamynstur og tækni til að skilja og nota tungumálið. Markvisst er lögð áhersla á að efla orðaforða nemenda til að byggja góðan grunn undir áframhaldandi nám í ensku.
Yes we can 2 samanstendur af verkefnabók (einnig rafbók), kennsluleiðbeiningum á vef, boxi með 102 flettispjöldum, veggspjöldum fyrir orðaforðaþjálfun og vefefni fyrir nemendur og kennara, www.yeswecan.is