Yes we can 4 – verkefnabók, er þriðja bókin í flokki sem inniheldur heildstætt námsefni í ensku fyrir yngsta – og miðstig en alls eru bækurnar sex talsins. Í námsefninu er lögð áhersla á að hvetja nemendur og kennara til að nota ensku í samskiptum. Nemendur vinna markvisst með orðaforða og þeim eru kynntar aðferðir sem hjálpa þeim að skilja og velta fyrir sér eigin málnotkun. Í Yes we can 4 er aukin áhersla á lestur, ritun og tal.
Yes we can 4 samanstendur af verkefnabók (einnig rafbók), kennsluleiðbeiningum á vef, boxi með 102 flettispjöldum, veggspjöldum fyrir orðaforðaþjálfun og vefefni fyrir nemendur og kennara, www.yeswecan.is