1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Yes we can 5 - nemendabók

Yes we can 5 - nemendabók

  • Höfundur
  • Ýmsir
  • Myndefni
  • Ýmsir
  • Vörunúmer
  • 7224
  • Skólastig
  • Miðstig
  • Útgáfuár
  • 2021

Yes we can 5 – nemendabók, er fyrsta bókin sem gefin er út í væntanlegum flokki sem inniheldur heildstætt námsefni í ensku fyrir yngsta – og miðstig en alls verða bækurnar sex talsins. Í námsefninu er lögð áhersla á að  auka hæfni nemenda til þess að nota tungumálið sem lifandi verkfæri í fjölbreyttum tilgangi og við ólíkar aðstæður. Efnistök eru úr hversdagslífi nemenda og áhersla er lögð á samfelldan texta sem höfðar til áhugasviðs þeirra ásamt fjölbreyttum verkefnum sem byggja á textanum.
Efnið samanstendur af nemendabók, verkefnabók, rafbók, hljóð – og hlustunarefni, gagnvirkum æfingum og kennsluleiðbeiningum á vef.


Tengdar vörur