Sproti 2b – Æfingahefti er ætlað yngsta stigi grunnskóla. Bókin kom fyrst út árið 2009 en birtist nú aukin og endurskoðuð í þriðju útgáfu. Lögð er áhersla á margs konar kennsluaðferðir og misþung verkefni. Markmiðin eru skýr og hvert viðfangsefni tekið fyrir á fjölbreyttan hátt. Textar eru stuttir og auðlesnir.
Helstu efnisþættir eru:
• Samhverfa
• Tvöfalt meira, helmingi minna, sléttar tölur og oddatölur
• Reikningur með tölum upp í 100
• Flatarmál
• Reikningur
• Marghyrningar og hringir
• Rúmfræðiform