Bókin er í flokki kennslubóka í stærðfræði fyrir yngsta stig grunnskóla. Í Sprota er lögð áhersla á margs konar kennsluaðferðir og misþung verkefni. Markmiðin eru skýr, textar eru stuttir og auðlesnir. Verkefni með bókinni og lausnir eru á Sproti – veftorg en próf eru inn á læstu svæði kennara.
Efnisþættir í Sproti 4b – Nemendabók eru:
- Ummál og flatarmál
- Margföldun og deiling 2
- Mælingar og tugabrot
- Almenn brot
- Reikningur
- Tölfræði