Stika er námsefnisflokkur í stærðfræði fyrir miðstig grunnskóla. Efnið er framhald af flokknum Sproti sem er fyrir yngsta stig. Stika býður upp á sveigjanleika í stærðfræðikennslunni með því að gefa kennurum möguleika á að nota mismunandi kennsluaðferðir. Textar eru stuttir og auðlesnir og markmið hvers kafla eru nákvæmlega tilgreind.
Áhersla er lögð á hagnýt og fjölbreytt verkefni þar sem tækifæri gefast til að rannsaka og skapa. Einstaklingsmiðað nám sem felur í sér sameiginlega námsreynslu nemendahópsins. Örugga framvindu námsins og skýr fagleg markmið í samræmi við námskrá.
Efni æfingaheftisins er skipt eftir efnisþáttum í kafla eins og í nemendabókinni. Þessum köflum er gróflega skipt í þrjú þyngdarstig. Léttustu verkefnin eru á fyrstu 2–3 bls. þar næst koma 2 bls. af meðalþungum verkefnum og síðurstu 3–4 bls. í kaflanum hafa að geyma erfiðari verkefni. Ekki er ætlast til að nemendur getir leyst öll verkefnin í æfingaheftunum.
Nemendabók og æfingahefti eru margnota bækur og ætlast til að nemendur noti reiknishefti.
Efnisþættir í Stiku 1a eru:
- Heilar tölur
- Tölfræði
- Tugabrot
- Rúmfræði