Stika 2b – Æfingahefti er margnota bók með samnefndri grunnbók í stærðfræði fyrir miðstig grunnskóla. Báðar bækurnar eru margnota og ætlast til að nemendur leysi verkefnin í reiknishefti.
Efni æfingaheftis er skipt eftir efnisþáttum í kafla eins og eru í nemendabók. Þessum köflum er gróflega skipt í þrjú þyngdarstig. Léttustu verkefnin eru fremst, þar næst koma nokkrar síður af meðalþungum verkefnum en aftast í kaflanum eru erfiðari verkefni. Lausnir eru á Stika- Veftorg.