Efnið er tímabundið aðgengilegt á rafrænu formi. Nálgast má pdf skrá með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Stærðfræði 9+ er önnur bókin af þremur í bókaseríunni 8-10+. Þetta er efni sem hægt er að nota sem sjálfstætt námsefni eða sem fylgiefni með öðru efni fyrir unglingastig. Áhersla er lögð á að þjálfa undirstöðuatriði í stærðfræði og er textinn einfaldur. Einnig eru komnar út kennsluleiðbeiningar með efninu Stærðfræði 9+. Í leiðbeiningunum er einnig umfjöllun um innihald og notkun bókarinnar, leiðbeiningar með einstökum blaðsíðum og lausnir.