Vegurinn heim er hjartnæm íslensk heimildarmynd byggð á viðtölum við fimm börn innflytjenda á Íslandi. Í henni ræða börnin líf sitt og tilveru hér á landi og lýsa upplifun sinni af því að vera á mörkum ólíkra menningarheima. Myndinni fylgja aðgengilegar kennsluleiðbeiningar. Þar eru fjölbreyttar og áhugaverðar hugmyndir að umfjöllun um efni myndarinnar með nemendum á öllum aldursbilum grunnskóla. Efnið er þarft innlegg í kennslu og umræðu um fjölmenningu hér á landi. Kennsluleiðbeiningar fylgja á vef Menntamálastofnunar. Fræðslumyndir Menntamálastofnunar eru aðeins til niðurhlaðs fyrir grunnskóla. Nauðsynlegt er að ip – tölur skóla séu skráðar hjá Menntamálastofnun.