Kennsluleiðbeiningar með bókinni frá Róm til Þingvalla sem er kennslubók í sögu fyrir miðstig grunnskóla. Í bókinni eru áherslur annars vegar á sögu fornaldar, einkum Rómaveldi og upphaf kristni, hins vegar á fyrstu aldir Íslandsbyggðar, frá landnámi og fram yfir kristnitöku. Einnig greinir frá Norðurlöndum allt frá steinöld og Vestur-Evrópu frá þjóðflutningum til víkingaaldar. Sérstakar æfingar og útskýringar hjálpa nemendum að nota tímatal og landakort. Nemendur eru hvattir til að nýta söfn, sýningar og sögustaði.