Við gerð þessarar námskrár var viðmiðunarrammi Evrópuráðsins fyrir erlend tungumál (Common European Framework of Reference for Languages) hafður til hliðsjónar.
Ramminn auðveldar og samræmir mat á tungumálakunnáttu og gerir tungumálakennsluna markvissari og skilvirkari. Evrópuráðið hefur einnig unnið að Evrópsku tungumálamöppunni (European Language Portfolio, ETM) sem byggir á viðmiðunarrammanum.
Hún er hjálpartæki í tungumálanámi og kennslu sem miðar að því að efla sjálfstæði og ábyrgð nemenda. Hún er þríþætt og inniheldur tungumálapassa, námsferilsskrá og safnmöppu. Í námsferilsskrá setur nemandi sér markmið, getur skráð hugleiðingar sínar um námið og framvindu þess og þar eru einnig gátlistar fyrir sjálfsmat.