"Það eru töfrar í tölum" - Um ný lestarpróf kl. 15:15 -16:15
"Það eru töfrar í tölum"
- Andrea Anna Guðjónsdóttir og Bjartey Sigurðardóttir.
Kynning á nýjum stöðuprófum sem Menntamálastofnun vinnur að ásamt að rýnt er í tilganginn með að leggja fyrir skimanir og próf. Það er mikilvæg færni í nútíma samfélagi að vera vel læs.
Til þess að meta árangur af kennslu er gott að hafa aðgang að stöðluðum matstækjum sem gefa greinagóðar upplýsingar um stöðu hvers nemanda, ásamt samræmdum lestrarviðmiðum.
Að undanförnu hefur verið unnið að gerð stöðuprófa í lestri fyrir grunnskólanemendur. Þessi próf eru stöðluð fyrir 1.-10 bekk grunnskóla og taka þau á ýmsum þáttum læsis svo sem lesfimi, lesskilningi og ritun. Stöðuprófin, sem byggja á aðalnámskrá grunnskóla, eru ekki ætluð til birtingar heldur eru þau fyrst og fremst hugsuð sem verkfæri fyrir viðkomandi skóla til að bæta kennslu og koma til móts við þarfir nemenda.
Með þessum nýju prófum fá grunnskólar í hendur verkfæri til að halda utan um lestrarferil allra nemenda sinna frá 1.-10. bekk. Prófin verða frí til afnota fyrir alla grunnskóla, hvort sem óskað er eftir að nota prófin í heild eða hluta þeirra.
1. kennslustund