Tilgangurinn er að kynna væntanlega rafræna fyrirlögn á samræmdum könnunarprófum. Farið verður yfir dag- og tímasetningar, stuðningsúrræði og undanþágur. Einnig verður Skólagáttin kynnt og þær breytingar sem verða gerðar á samræmdum könnunarprófum í 4. og 7. bekk, haustið 2016.
Áætlað er að fundurinn taki klukkutíma og gefst tækifæri til fyrirspurna.
Dagsetning | tími | fundarstaður | bæjarfélag |
29. ágúst | Kl. 15.00 – 16.00 | Egilsstaðaskóli | Egilsstaðir |
30. ágúst | Kl. 14.30 – 15.00 | Menntaskóli Borgarfjarðar | Borgarnes |
1. september | Kl. 14.00 – 15.00 | Íþróttaakademían | Reykjanesbær |
5. september | Kl. 14.30 – 15.30 | Smáraskóli | Kópavogur |
6. september | Kl. 14.00 – 15.00 | Sunnulækjarskóli | Selfoss |
7. september | Kl. 14.30 – 15.30 | Giljaskóli | Akureyri |
8. september | Kl. 14.00 - 16.00 | Grunnskóli Ísafjarðar | Ísafjörður |
Allir fundir verða opnir þannig að fundargestir geta valið þann fundarstað sem hentar þeim.
Þá er fyrirhugað að taka upp kynningu sem verður aðgengileg á vefsvæði mms.is.