Fræðsluerindi fyrir grunnskólakennara í Reykjavík haustið 2016
Erindið er á vegum matssviðs Menntamálastofnunar í samvinnu við Miðstöð máls og læsis. Erindið er fyrir deildarstjóra, kennara og þá sem eru í forsvari fyrir læsis- og íslenskukennslu í grunnskólum borgarinnar.
Tilgangur og meginmarkmið erindisins er að fræða um gagnsemi þess að rýnt sé í tölur með markvissum hætti, skólunum til heilla, kynna fyrirhuguð skimunartæki, fyrirlögn þeirra ásamt nýjum skýrslugrunni. Einnig verður kynning á íslensku námsefni sem Menntamálastofnun gefur út.
Dagskrá funda er hér að neðan en gert er ráð fyrir að erindi og fyrirspurnir rúmist innan fundartíma.
Dagsetning | tími | fundarstaðir |
13. október | Kl. 14:30 - 16:00 | Klébergsskóli |
19. október | Kl. 14:30 - 16:00 | Rimaskóli |
27.október | Kl. 14:30 - 16:00 | Norðlingaskóli |
3. nóvember | Kl. 14:30 - 16:00 | Hólabrekkuskóli |
10. nóvember | Kl. 14:30 - 16:00 | Réttarholtsskóli |
17. nóvember | Kl. 14:30 - 16:00 | Háteigsskóli |
24. nóvember | Kl. 14:30 - 16:00 | Hagaskóli |
Allir fundarstaðir verða opnir. Þannig að hver og einn skólastjóri velur þann fundarstað sem hentar viðkomandi skóla og tilkynnir fjölda þátttakenda til stjórnanda í móttökuskóla.
Mikilvægt er að skólastjórnendur upplýsi kennara sem sjá um læsismál og eða íslenskukennslu innan skólanna um fundartíma og fundarstað.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir er varða erindið á [email protected] eða [email protected]
Með þökkum fyrir gott samstarf við skipulagningu kynningarfunda.