Greina má áhrif þrenginga á atvinnumarkaði í kjölfar efnahagshrunsins í umsóknum til undanþágunefndar grunnskóla. Þá fækkaði umsóknum til nefndarinnar og fleiri kennarar með kennsluréttindi sóttu um kennslustöður í grunnskólum. Með batnandi ástandi á vinnumarkaði hefur umsóknum fjölgað aftur og þykir sýnt að kennarar leita nú aftur í önnur störf. Þetta má sjá í samantekt á umsóknafjölda nefndarinnar á árunum 2000 - 2016.