Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Menntamálastofnun efna til fundaraðar um niðurstöður PISA 2015.
Á öðrum fundinum, þann 16. febrúar mun Freyja Hreinsdóttir, dósent við Menntavísindasvið fjalla um stöðu læsis í stærðfræði.
Fundirnir verða sendir beint út og verða inn tenglar fyrir hverja málstofu auglýstir.
Fyrirlestrarnir fara fram fimmtudaga frá klukkan 15:00 – 16:30 í stofu H205 í húsnæði Menntavísindasvið í Stakkahlíð.