Þemaheftið fjallar stuttlega um líf fólks í Mið- og Suður-Ameríku frá landnámi, fram til ársins 1500.
Stiklað er á stóru um lifnaðarhætti og trúarbrögð þriggja stærstu samfélaganna á svæðinu, Inka, Azteka og Maya. Einnig er hernám Evrópumanna skoðað og áhrif þess á innfædda.