Gjallarhorn er þemahefti í íslensku. Nemendur setja sig í spor þeirra sem vinna við fjölmiðla og þeim gefinn kostur á að útbúa í sameiningu eigin fjölmiðil. Hver og einn velur verkefni eftir áhuga og allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi þar sem unnið er með ólík færnisvið. Áhersla er lögð á fjölbreytt vinnubrögð og efnisþætti. Bókin er einkum ætluð nemendum í 5. -8. bekk.
Ef rafbókinni er hlaðið niður þá birtist hún sem venjulegt pdf-skjal