Menntamálastofnun stendur fyrir kynningarfundum í apríl og maí. Þar mun flutningur á lager námsbóka frá Menntamálastofnun til A4 vera kynntur fyrir skólastjórnendum, kennurum og fræðslustjórum, sem og afnám kvóta á námsefni og breyttar áherslur á pöntunarfyrirkomulagi.
Erling R. Erlingsson, sviðsstjóri miðlunarsviðs mun sjá um kynninguna. Áætlað er að fundurinn taki klukkutíma og gefst tækifæri til fyrirspurna í lokin. Fundirnir eru öllum opnir.
Dagskrá kynningarfunda má sjá hér fyrir neðan með fyrirvara um breytingar á dagsetningum og fundartímum.
Dagsetning | tími | fundarstaður | bæjarfélag |
25. apríl | 14:30 | Grunnskólinn á Ísafirði | Ísafjörður |
27. apríl | 14:00 | Íþróttaakademían, Krossmóum | Reykjanesbær |
3. maí | 14:00 | Vallaskóli | Selfoss |
4. maí | 14:00 | Hjálmaklettur | Borgarnes |
8. maí | 15:00 | Brekkuskóli | Akureyri |
9. maí | 14:00 | Egilsstaðaskóli | Egilsstaðir |
10. maí | 15:00 | Nýheimar | Höfn |
11. maí | 14:00 | Borgartúni 12 - 14 | Reykjavík |
12. maí | 13:00 | Hamarsskóli | Vestmannaeyjar |
15. maí | 15:00 | Árbæjarskóli | Reykjavík |
16. maí | 14:30 | Salaskóli | Kópavogur |
17. maí | 15:00 | Grunnskóli Snæfellsbæjar í Ólafsvík | Snæfellsbær |