Í bókinni Í bíltúr eru bókstafirnir y, ý og b sérstaklega æfðir. Efnið er á þyngdarstigi 1 og er hluti af lestrarkennsluefninu Listin að lesa og skrifa. Bókin er nr. 11a í röð 34 lítilla lestrarbóka. Efnið skiptist í fjórar vinnubækur, litlar lestrarbækur, örbækur, lestrarspil, kennsluleiðbeiningar og verkefni á vef.
Listin að lesa og skrifa er fyrir byrjendur í lestri og byggist fyrst og fremst á hljóðaaðferð. Lögð er áhersla á hæga stígandi, myndræna framsetningu, skipuleg vinnubrögð og endurtekningu. Allur texti er án samhljóðasambanda með greinilegu letri og góðu línubili.