Í þessari bók eru rakin spor dægurtónlistar allt frá bænda- og hirðdönsum miðalda til stórsveita eftirstríðsára og danshljómsveita 6. áratugar. Komið er við í Vínarborg þar sem valsinn dunaði snemma á 19. öld og fór eins og eldur í sinu um hinn vestræna heim. Þá er fjallað um polka, óperettur, lúðrasveitir, ragtime, djass, tangó, revíur, söngflokka, stríðsáratónlist og íslensk sjómanna- og síldarlög. Kennara- og hlustunarefni auk verkefnasafns verður aðgengilegt innan skamms.
Geitur í garðinum er námsefni í flokkinum Sestu og lestu og er ætlað börnum á yngsta stigi og miðstigi sem hafa náð tökum á undirstöðuatriðium lestrar. Því er ætlað að vekja með börnunum lestrargleði og áhuga og kynna fyrir þeim mismunandi framsetningu texta. Einnig er hægt að nálgast bókina sem hljóðbók.
Bókin hefur nú verið gefin út sem rafbók en afskrifuð í prentaðri útgáfu. Um ræðir námsefni í flokknum Trúarbrögð mannkyns og er ætlað miðstigi grunnskóla. Þar er rakin saga trúarbragðafræðinnar og sagt frá helstu helgiritum, siðum og háttu. Einnig er rætt við íslenska gyðinga.
Hér endursegir Iðunn Steinsdóttir Snorra Eddu fyrir börn en þetta er önnur bókin af þremur og er sjálfstætt framhald bókarinnar Óðinn og bræður hans. Lýst er lífinu í Ásgarði, klækjum Loka og afkvæmum hans, viskubrunninum, smíði virkisveggjarins og ragnarökum. Bókin er prýdd fjölda litmynda. Þriðja bókin er Æsir á fljúgandi ferð – Hefnd Loka.