Sérfræðingur í málefnum framhaldsskóla og framhaldsfræðslu
Menntamálastofnun stuðlar að framförum í þágu menntunar í samræmi við stefnu stjórnvalda, bestu þekkingu og alþjóðleg viðmið. Stofnunin sinnir víðtæku hlutverki við mat á menntun, þróar og miðlar námsgögnun til nemenda og veitir margskonar þjónustu við menntakerfið.
Auglýst er laus til umsóknar staða sérfræðings í málefnum framhaldsskóla og framhaldsfræðslu. Um er að ræða 100% starf og laun eru greidd samkvæmt samningum fjármálaráðuneytisins og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
Í starfinu felst þátttaka í fjölbreyttum verkefnum á sviði framhaldsskólamála og framhaldsfræðslu.
Helstu verkefni:
• þjónusta og ráðgjöf í málefnum framhaldsskóla, m.a. undirbúningur staðfestingar námsbrautalýsinga, starfsmenntamál og viðurkenning einkaskóla
• þjónusta og ráðgjöf í málefnum framhaldsfræðsluaðila, m.a. viðurkenning framhaldsfræðsluaðila og vottun námskráa í framhaldsfræðslu
• þátttaka í evrópskum samstarfsverkefnum
• þátttaka í tengdum verkefnum
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af málefnum framhaldsskóla og framhaldsfræðslu skilyrði
• Þekking og reynsla af evrópskum samstarfsverkefnum æskileg
• Þekking á verkefnastjórnun og færni í að vinna í teymum æskileg
• Færni í miðlun upplýsinga í mæltu og rituðu máli og öryggi í meðferð gagna
• Skipulögð vinnubrögð og góðir samskiptahæfileikar
Umsókn um starfið fylgi skrá yfir menntun og starfsferil, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsókn sendist á [email protected] merkt: Sérfræðingur, framhaldsskóli. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veitir Kolfinna Jóhannesdóttir teymisstjóri, í síma 514-7500, netfang: [email protected]
Umsóknafrestur er til og með 5. febrúar 2018.