Sögur er samstarfsverkefni Menntamálastofnunar og KrakkaRÚV. Markmið samstarfsins er að framleiða efni er hvetur krakka á aldrinum 6 til 12 ára til aukins lesturs og skapandi skrifa.
Frá október 2017 fram í apríl 2018 birtast skemmtileg og fræðandi myndbönd í KrakkaRÚV bæði í sjónvarpi og á vefsvæði. Þar fá krakkar leiðsögn í skapandi skrifum, taka viðtöl við rithöfunda og fjalla um barna- og unglingabækur. Fjölbreyttar fyrirmyndir í íslensku samfélagi munu einnig segja okkur frá bókum sem hafa haft áhrif á þau.
Í Krakkakiljunni eru svo börn úr Lestrarráði KrakkaRÚV fengin til að fjalla um nýjar íslenskar barnabækur.