Nú þegar líður að PISA-könnuninni er ekki úr vegi að benda á Skilningsbókina sem er verkefnabók til útprentunar.
Í henni eru verkefni sem þjálfa skilning í lestri, stærðfræði og náttúrufræði en við gerð hennar var tekið mið af PISA-könnunum. Nemendur eru þjálfaðir í að leysa verkefni í þeim anda.
- Markmiðið er að gera þá hæfari til að leysa fjölbreytt verkefni úr daglegu lífi.
- Enn fremur eru í bókinni verkefni í fjármálalæsi sem miða að því að þjálfa skilning á ýmiss konar tilboðum þannig að nemendur sjái hvað er hagkvæmast í raun.
- Upplýsingalæsi er mjög mikilvægt nútímamanninum til að vinna úr þeim upplýsingum sem berast í daglegu lífi. Það er ekki nóg að geta skilið lesinn texta því upplýsingar birtast einnig í töflum, kortum, línuritum, teikningum og annarri grafík sem fólk þarf að geta ráðið fram úr til að nýta sér þær.
- Með þessu námsefni má auka lesskilning nemenda með lestri á tiltölulega stuttum textum og textarýni. Í kjölfarið fylgja markvissar spurningar og verkefni sem þjálfa nemendur í að ráða í merkingu orða út frá samhengi í texta og kryfja meginefni hans til mergjar.