Fjöltyngi er fjölkynngi*
Vakin er athygli á því að 21. febrúar er alþjóðadagur móðurmálsins en áherslur dagsins í ár tengjast því að viðhalda fjölbreytni tungumála og ýta undir fjöltyngi.
Hér á landi verður margt gert í tilefni dagsins og má þar nefna málþing í Veröld – húsi Vigdísar sem ber heitið Orðabækur: Fjölbreytni tungumála, fjöltyngi og þýðingar.
Eins vekjum við athygli á stofnunum og verkefnum sem tengjast fjölbreytni tungumála.
Móðurmál – samtök um tvítyngi.
Samfok – allir með.
Multilingual Month – mánuður helgaður fjöltyngi.
Sameinuðu þjóðirnar – alþjóðadagur móðurmálsins.
Reykjavíkurborg – fjölmenningarstefna.
Tungumálatorg – tungumálaforðinn.
Tungumálatorg – hugmyndabanki.
Borgarbókasafn - fjölmenning.
*Þessi skemmtilega yfirskrift var upphaflega notuð sem heiti á ráðstefnu á vegum STÍL sem fór fram í Reykjavík árið 2000.
Hér má sjá hluta þeirra fjölmörgu tungumála sem töluð eru á Íslandi