Bandaríska fyrirtækið Assessment Systems, þjónustuaðili prófakerfis Menntamálastofnunar, hefur viðurkennt að villa, sem kom upp í evrópskum gagnagrunni stofnunarinnar, hafi truflað próftöku rúmlega 4.300 íslenskra nemenda sem hugðust þreyta samræmd próf í íslensku og ensku í síðustu viku. Villan varð til þess að margir nemendur komust ekki inn í prófin og urðu frá að hverfa eða svöruðu prófinu við óviðunandi kringumstæður. Þetta hafði umtalsverða röskun í för með sér á skipulagi skólastarfs 9. bekkinga víða um land. Menntamálastofnun hyggst gera allt sem í hennar valdi stendur til að samskonar röskun verði ekki aftur.
Gengið hefur verið frá ráðningu óháðs aðila til að fara yfir ferlið í heild sinni og leiða í ljós hvort eitthvað í undirbúningi stofnunarinnar hefði mátt betur fara. Niðurstöður þeirrar sjálfstæðu athugunar verða gerðar opinberar. Menntamálastofnun hefur einnig óskað eftir því við mennta- og menningarmálaráðuneytið að kallaður verði saman sérfræðihópur sem hefur eftirlit með framkvæmd samræmdra könnunarprófa.
Menntamálastofnun mun, í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið, skera úr um hvernig farið verður með niðurstöður samræmdra könnunarprófa nú í ár. Niðurstaða hvað það varðar mun liggja fyrir eftir fund með hagsmunaaðilum á miðvikudag. Gætt verður sérstaklega að hagsmunum allra nemenda og jafnræði milli þeirra tryggt.
---
Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar: „Ég bið nemendur, foreldra, kennara og skólastjórnendur innilega afsökunar á þeim mistökum sem urðu við framkvæmd prófanna í síðustu viku. Þó að ástæðan hafi verið villa í tölvukerfi Assessment Systems þá er enginn vafi á því að endanleg ábyrgð á framkvæmd samræmdra könnunarprófa í grunnskólum liggur hjá Menntamálastofnun. Við þurfum að skoða vel hvort ástæða sé til að gera breytingar á framkvæmdinni og mun sú skýrsla, sem nú er í vinnslu, vonandi gagnast við þá vinnu.“