Á nýju ári hafa ritstjórar Menntamálastofnunar heimsótt grunnskóla vítt og breitt um landið.![]()
Tilgangur heimsóknanna er að auka samstarf kennara og ritstjóra sem vinna að gerð námsefnis hjá stofnuninni. Þannig viljum við koma á beinum tengslum við kennara sem nota námsefni sem Menntamálastofnun gefur út. Einnig gefst kennurum kostur á að koma á framfæri sínum sjónarmiðum varðandi námsefni og áherslur í námsefnisgerð.
Góðar og gagnlegar umræður hafa átt sér stað í skólaheimsóknunum. Kennarar hafa miðlað til okkar hugmyndum að nýju námsefni og upplýst okkur um það efni sem hefur reynst vel eða bent á það sem betur mætti fara. Einnig hefur verið lærdómsríkt að heyra sjónarmið nemenda og sjá hvernig námsefnið okkar er nýtt í kennslu.
Heimsóknir munu halda áfram fram á vor og vonumst við til að geta tekið þráðinn upp að nýju á haustdögum og heimsótt enn fleiri skóla.
Auður Bára, Elín Lilja, Gurrý, Harpa, Sigrún Sóley, Sissý og Skúli
