Ráðstefna um menntavísindi á vegum
Menntamálastofnunar og Miðstöðvar skólaþróunar
verður haldin í Háskólanum á Akureyri laugardaginn 15. september 2018
Laugardaginn 15. september 2018 verður efnt til læsisráðstefnu á Akureyri. Ráðstefnan er haldin í samstarfi Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Menntamálastofnunar. Á ráðstefnunni verður fjallað um tengsl læsis og sköpunar með sérstakri áherslu á ritun, tjáningu og stafræna miðlun.
Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar:
- Jackie Marsh, prófessor við Sheffield háskóla á Bretlandi (stafrænt læsi)
- Rannveig Oddsdóttir, sérfræðingur við Miðstöð skólaþróunar HA (ritun)
- Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson, dagskrárgerðarfólk RÚV (sögugerð)
Dr. Jackie Marsh Sindri Bergmann Þórarinsson og Sigyn Blöndal Dr. Rannveig Oddsdóttir
Fyrir hverja?
Ráðstefnan er ætluð kennurum á öllum skólastigum og sérstaklega horft til þess að viðfangsefni hafi hagnýtt gildi fyrir kennara. Auk aðalfyrirlestra verða bæði málstofuerindi og vinnustofur þar sem reifuð verða ýmis mál er lúta að læsi í skapandi skólastarfi. Málstofuerindi verða 30 mínútur og þar gefst tækifæri til þess að segja frá rannsóknarniðurstöðum eða áhugaverðum verkefnum í skólum. Vinnustofur verða 60 mínútur og þar er gert ráð fyrir kynningu á aðferðum og verkfærum og að ráðstefnugestir fái tækifæri til að prófa.
Skráning á Læsi í skapandi skólastarfi
Nánari upplýsingar veitir Laufey Petrea Magnúsdóttir, 460 8590, netfang: [email protected]