Í bókinni Dýrabær eru bókstafirnir d og au sérstaklega æfðir. Efnið er á þyngdarstigi 1 og er hluti af lestrarkennsluefninu Listin að lesa og skrifa. Bókin er nr. 13a í röð 42 lítilla lestrarbóka. Efnið skiptist í fjórar vinnubækur, litlar lestrarbækur, örbækur, lestrarspil, kennsluleiðbeiningar og verkefni á vef.
Lestrarkennsluefnið Listin að lesa og skrifa er fyrir byrjendur í lestri og byggist fyrst og fremst á hljóðaaðferð. Lögð er áhersla á hæga stígandi, myndræna framsetningu, skipuleg vinnubrögð og endurtekningu. Textinn er að mestu án samhljóðasambanda með greinilegu letri og góðu línubili.