Í bókinni eru kynnt ýmis orð um landslag á Íslandi og sagt frá nokkrum merkilegum stöðum. Bókinni er skipt í stutta kafla og er einn kafli á hverri síðu. Efnið er sett fram í skýrum og knöppum texta, stuttum línum og með skýru letri. Á hverri blaðsíðu eru ljósmyndir og teikningar. Bókin er einkum ætluð nemendum á mið- og efsta stigi grunnskólans sem ekki getað notað almennt námsefni í landafræði. Ný og endurskoðuð útgáfa kom 2010 í henni eru auk uppfærlu á texta, nýjar ljósmyndir og orðskýringar sem áður voru aðeins í kennarabókinni.