Eðlisfræði 3 er í flokki kennslubóka í náttúrugreinum sem kallast Litróf náttúrunnar. Efnið er ætlað unglingastigi grunnskóla.
Bókin skiptist í fjóra meginkafla sem hver um sig skiptast í nokkra undirkafla. Fyrsti kafli er um kjarneðlisfræði. Í öðrum kafla er inntakið orkuöflun mannkyns. Þriðji kafli fjallar um sólkerfið og sá fjórði um alheiminn.
Á læstu svæði kennara má finna svör úr sjálfsprófum og lokahnykkjum ásamt hugmyndum að kaflaprófum og svörum við þeim.