Í bókinni Í Hólaseli eru bókstafirnir í, ó, s, á, l, a, i, r, ú, m, u, v, e, n, o, æ, f, j, é og h æfðir ásamt orðmyndunum og, ekki, sagði, ég, að, mamma, Halli og minn.
Bókin er hluti af lestrarkennsluefninu Listin að lesa og skrifa og nr. 8a í röð tuttugu og fjögurra lítilla lestrarbóka. Efnið skiptist að öðru leyti í fjórar vinnubækur, litlu lestrarbækurnar, örbækur, lesspil, kennsluleiðbeiningar, verkefni á vef o.fl. Það er fyrir byrjendur í lestri og byggist fyrst og fremst á hljóðaaðferð. Lögð er áhersla á hæga stígandi, myndræna framsetningu, skipuleg vinnubrögð og endurtekningu. Allur texti er án samhljóðasambanda með greinilegu letri og góðu línubili.