Í gjótu er sjötta bókin af átta þar sem áhersla er lögð á að æfa markvisst samhljóðasambönd í léttum og lifandi texta.
Hinar bækurnar eru Leynifélagið Skúmur, Læstur inni, Úti að aka, Á spani, Á strönd, Í lofti og Hjá risaeðlu.
Í bókinni Í gjótu eru sérstaklega æfð orð með samhljóðum á undan lj og j í upphafi orða. Samhljóðasambandssögurnar eru hluti af Smábókum Námsgagnstofnunar. Flokkurinn er ætlaður börnum sem eru að læra að lesa. Honum er skipt í fimm þyngdarstig og eru samhljóðasambandssögurnar í 3. flokki.