Endurskoðuð útgáfa 2011. Í þessu einnota vinnuhefti er að finna umfjöllun um helstu atriði í sambandi við fjármál einstaklinga. Má þar nefna skatta, greiðslukort, lántökur, vanskil, lífeyrissjóði og fleira.
Fjallað er stuttlega um hvert atriði og því fylgt eftir með verkefnum. Í mörgum verkefnum er gert ráð fyrir upplýsingaleit og notkun reiknivéla á Netinu.
Verkefnin í bókinni eru:- Við borgum skatta
- Hvað færðu útborgað?
- Uppsafnaður persónuafsláttur
- Af hverju borgum við í lífeyrissjóð?
- Viðbótarlífeyrissparnaður
- Debetkort
- Þú ætlar að geyma peninga
- Yfirdráttur
- Kreditkort og raðgreiðslur
- Skuldabréfalán
- Að kaupa á Netinu
- Rekstur bíls
- Að eignast bíl
- Hverjar eru líkurnar?
- Hvað kostar þinn lífsstíll
- Húsnæði
- Hvað gerist ef þú borgar ekki?
- Þú ferð að búa – reka þitt eigið heimili
- Hagsýni