Menntamálastofnun óskar eftir samstarfi við kennara um þróun verkefna í málnotkun fyrir samræmd könnunarpróf í 4., 7. og 9. bekk.
Hjá Menntamálastofnun eru samræmd könnunarpróf í stöðugri þróun en þeim er ætlað að endurspegla áherslur í aðalnámskrá grunnskóla. Við gerð prófatriða er beitt faglegum og öguðum vinnubrögðum og prófatriði markvisst búin til þannig að þau reyni á tiltekna færni með tilteknum hætti.
Hugmyndin með samstarfinu er að fá nokkra reynda íslenskukennara í afmarkaða vinnu við gerð nýrra prófatriða.
Gert er ráð fyrir að verkefnið verði unnið í verktakavinnu og ákveðinn sveigjanleiki er á því hvenær það er unnið.
Nánari upplýsingar veita Sverrir Óskarsson, sviðsstjóri matssviðs [email protected] og Inga Úlfsdóttir, próffræðingur, [email protected].